Hjálparákallsmál

Mjanmar: ungur baráttumaður fyrir mannréttindum í sex ára fangelsi

 

Zayar Thaw

Zayar Thaw

 

Zayar Thaw er einn leiðtoga baráttuhóps fyrir mannréttindum og afplánar nú sex ára fangelsisdóm í Mjanmar. Hann var dæmdur þann 20. nóvember 2008 fyrir að „stofna ólögleg samtök“ og hafa erlendan gjaldeyri í fórum sér. Hann var með erlendan gjaldeyri sem nam minna en 2.500 krónum í fórum sínum. Zayar Thaw hlaut hámarksrefsingu fyrir brotin tvö. Amnesty International telur hann vera samviskufanga.

Zayar Thaw var einn stofnenda baráttuhópsins, sem settur var á laggirnar í kjölfar þess að friðsamir mótmælendur, sem kröfðust lýðræðisumbóta, voru drepnir og handteknir unnvörpum saman í ágúst og september 2007. Baráttuhópurinn hvetur stúdenta og ungt fólk til að mótmæla friðsamlega gegn herforingjastjórninni með veggspjöldum, bæklingum og myndbandsupptökum. Zayar Thaw hefur sagt að þrýstingur verði að koma frá landsmönnum sjálfum svo að breytingar verði í landinu.

Hann veitti Mizzima News viðtal í nóvember 2007 þar sem hann sagði að þó að baráttuhópurinn fagnaði alþjóðlegum þrýstingi, „geta engar breytingar orðið fyrr en þrýstingur innanlands neyðir herforingjastjórnina til breytinga.“

Zayar Thaw var haldið í Insein- fangelsi í heimabæ hans, Yangon, eftir að hann var handtekinn þann 12. mars 2008. Eftir að dómur féll í máli hans var hann fluttur í Kawthaung-fangelsi syðst í Mjanmar. Fjölskylda hans á erfitt með að heimsækja hann svo langt frá heimahögunum. Að minnsta kosti 13 aðrir meðlimir baráttuhópsins hafa einnig verið handteknir; 6 þeirra afplána nú frá 5 til 8 ára fangelsisdóma.

 

Þrýstu á stjórnvöld !

Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali



 




RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica cmscms - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.