Simbabve: réttindum kvenna ógnað

Félagar í WOZA
Félagar í kvenréttindahreyfingunni Konur Simbabve rísið upp (Women of Zimbabwe Arise (WOZA)) voru handteknir í friðsamlegum mótmælum á Valentínusardag 2003. Sumum þeirra var haldið í fjóra tíma, aðrir voru í haldi yfir nótt. Síðan þá hefur lögregla ítrekað áreitt, ógnað, handtekið og misþyrmt félögum í WOZA.
Félagar eru enn handteknir við friðsamleg mótmæli. Sumir félagar í WOZA hafa verið handteknir og hnepptir í varðhald þrátt fyrir að þeir væru þungaðir eða með börn sín með sér.
Lögregla í Harare handtók 14 baráttukonur WOZA þann 28. maí 2008 í kröfugöngu þeirra gegn ofbeldi stjórnvalda í aðdraganda seinni umferðar forsetakosninga í landinu. Tólf þeirra var sleppt gegn tryggingu þann 11. júní, en ekki forvígiskonum hreyfingarinnar, þeim Jenni Williams og Magodonga Mahlangu, sem sátu 37 daga í varðhaldi. Réttarhöldin yfir þeim standa enn yfir. Þær gætu átt 5 ára fangelsisdóm yfir höfði sér verði þær fundnar sekar.
Yfir 3.000 félagar í WOZA hafa verið hnepptir í varðhald gegnum árin og sú ógn að vera handtekinn vofir stöðugt yfir mannréttindastarfi þeirra. Venjulega skipuleggur WOZA mótmæli í febrúar og mars til að leggja áherslu á vandamál venjulegra kvenna og fjölskyldna þeirra og lélegt aðgengi þeirra að efnahagslegum, félagslegum og menningarlegum réttindum sínum. Febrúar og mars eru táknrænir fyrir baráttufólk fyrir réttindum kvenna og stuðningur þinn nú mun hjálpa friðsamlegri baráttu þeirra fyrir réttindum kvenna í Simbabve.
Þrýstu á stjórnvöld !
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
