Hjálparákallsmál

Íran: Emadeddin Baghi - handtekinn í kjölfar dauða andófsklerks

 

Emadeddin_Baghi

Emadeddin Baghi

 

Emadeddin Baghi, sem er baráttumaður fyrir mannréttindum, blaðamaður og rithöfundur, var handtekinn á heimili sínu árla morguns þann 28. desember 2009. Fjórir vopnaðir menn á vegum stjórnvalda brutu sér leið inn í húsið, börðu mág hans og veifuðu almennri handtökuskipun, þar sem nafn Emadeddin Baghi kom ekki fram. Handtaka hans var gerð í kjölfar þess að birt var tveggja ára gamalt viðtal hans við klerkinn Ayatollah Montazeri. Emadeddin Baghi fullvissaði fjölskyldu sína að honum yrði ekki haldið lengi í fangelsi; fulltrúar yfirvalda sögðu honum að hann myndi ekki lifa nógu lengi í fangelsi til að haldast sterkur.

Emadeddin Baghi hefur verið fangelsaður nokkrum sinnum. Ill meðferð í fangelsi hefur gert að verkum að hann þarf reglulega á læknisaðstoð að halda. Hann hringdi til fjölskyldunnar eftir að hann var handtekinn og staðfesti að honum væri haldið í Evin-fangelsi í Teheran. Hann hefur ekki haft frekara samband við fjölskyldu sína, lögfræðing sinn eða lækni. Amnesty International telur hann vera samviskufanga. Margt baráttufólk fyrir mannréttindum hefur verið handtekið frá því víðtæk mótmæli brutust út í Íran í júní 2009.

Árið 2002 stofnaði Emadeddin Baghi Samtök til varnar réttindum fanga (the Association for the Defence of Prisoners’ Rights (ADPR)), sem tóku saman upplýsingar um pyndingar og önnur brot gegn fólki í fangelsi. Írönsk stjórnvöld bönnuðu starfsemi samtakanna í ágúst 2009 og hafa ekki leyft Emadeddin Baghi að fara frá Íran frá því í október 2004, þegar vegabréf hans var gert upptækt. Hann gat því ekki veitt viðtöku hinum virtu  Martin Ennals verðlaunum fyrir baráttufólk fyrir mannréttindum í nóvember 2009.

 

Þrýstu á stjórnvöld !

Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica