Kólumbía: SINALTRAINAL - "Við hringum ekki aftur"

Javier Correa, forseti SINALTRAINAL
Gustavo Gómez opnaði dyrnar heima hjá sér þann 21. ágúst 2009. Fyrir utan voru tveir vopnaðir menn. Þeir skutu hann 10 sinnum og lést hann af sárum sínum. Gustavo Gómez var félagi í verkalýðsfélagi fólks í matvælavinnslu (SINALTRAINAL), en ólíkt öðrum félögum í verkalýðsfélaginu virðist hann ekki hafa fengið morðhótanir áður en hann var drepinn. Að minnsta kosti 22 félagar í verkalýðsfélaginu hafa verið myrtir frá því það var stofnað árið 1982.
Þrír leiðtogar SINALTRAINAL, þeir Luis Javier Correa Suárez, José Domingo Florez og Luís Eduardo García, hafa sætt morðhótunum vopnaðra hópa. Þann 24. nóvember 2009 fékk Luis Javier Correa, forseti verkalýðsfélagsins, morðhótun í gegnum farsíma sem hann fékk frá verndarkerfi innanríkis- og dómsmálaráðuneytisins. Rödd sagði við hann: „ Javier Correa, þú hefur frest til tuttugasta og annars til að segja af þér, þú færð ekki aðra hringingu“.
Stjórnvöld hafa gripið til ráðstafana til að vernda meðlimi verkalýðsfélaga. Binda þarf enda á refsileysi þeirra sem áreita og drepa meðlimi og forsvarsmenn verkalýðsfélaga. Yfir 2.000 félagar í verkalýðsfélögum hafa verið drepnir í landinu síðustu tvo áratugi og 138 sætt þvinguðum mannshvörfum. Allir aðilar átakanna í landinu, öryggissveitir landsins, vopnaðir hópar tengdir stjórnvöldum og vopnaðir hópar stjórnarandstæðinga hafa drepið félaga í verkalýðsfélögum.
Þrýstu á stjórnvöld !
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
