Tsjad: Ibni Oumar Mahamat Saleh - forystumaður stjórnarandstöðunnar sætir þvinguðu mannshvarfi

Ibni Oumar Mahamat Saleh
Ibni Oumar Mahamat Saleh, leiðtogi Flokks frelsis og þróunar (Parti pour les Libertés et le Développement) og málsvari bandalags stjórnarandstöðuflokka í Tsjad, var handtekinn af meðlimum öryggissveita Tsjad á heimili sínu í höfuðborginni, N’Djamena, þann 3. febrúar 2008. Ekki er vitað um afdrif hans. Tveir aðrir stjórnarandstæðingar, sem handteknir voru sama dag, voru síðar látnir lausir. Stjórnvöld neita að öryggissveitir landsins hafi handtekið hann.
Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir fjölskyldu hans, Sameinuðu þjóðanna, Evrópusambandsins og mannréttindasamtaka neita yfirvöld í Tsjad að veita nokkrar upplýsingar um afdrif Ibni Oumar Mahamat Saleh. Stjórnvöld settu á laggirnar rannsóknarnefnd til að rannsaka mannréttindabrot í tengslum við herárás á N’Djamena í febrúar 2008. Nefndin staðfesti að öryggissveitir landsins hefðu handtekið hann og sagði mögulegt að hann væri látinn.
Fulltrúar Amnesty International heimsóttu Tsjad í maí 2008 og aftur í maí 2009 og ræddu um þvingað mannshvarf Ibni Oumar Mahamat Saleh við fulltrúa yfirvalda, þeirra á meðal ráðherra í stjórn landsins og forseta Mannréttindanefndar Tsjad. Engar frekari upplýsingar hafa þó fengist um afdrif hans. Máli hans svipar mjög til annarra sambærilegra mála í Tsjad, þar sem fólk hefur sætt þvinguðum mannshvörfum.
Þrýstu á stjórnvöld !
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
