Sádi Arabía - í varðhaldi án réttarhalda í sjö ár
Hjálparákall maí 2010

Dr. Ahmad ‘Abbas Ahmad Muhammad
Dr. Ahmad ‘Abbas Ahmad Muhammad, egypskur lyfjafræðingur, var einn margra erlendra ríkisborgara sem voru handteknir í Riyadh í Sádi Arabíu eftir sjálfsmorðssprengjuárás þann 12. maí 2003, þar sem 35 manns létu lífið. Hann hafði flutt til landsins tveimur mánuðum áður til að vinna á heilsugæslustöð.
Ahmad Muhammad var haldið í einangrun í Riyadh í um þrjú ár áður en honum var leyft að hringja í fjölskyldu sína. Þá fyrst fékk fjölskylda hans einhverjar fréttir af honum. Síðar frétti hún að í kjölfar sprengjuárásarinnar hafi hann verið spurður um árásina, trúarhópa og al-Kaída, en ekki ákærður fyrir neinn glæp. Lögfræðingur fjölskyldunnar hefur ekki getað haft samband við hann, en honum skilst að hann hafi nýverið verið fluttur úr fangelsi í bænum Abha í al-Ha’ir-fangelsi í Riyadh.
Lögfræðingur Ahmad Muhammad hefur lagt fram kæru til dómstóls í Kaíró, þar sem þess er freistað að fá dómstólinn til að kveða upp úrskurð sem neyðir egypsk stjórnvöld til að grípa til aðgerða til að verja mannréttindi hans. Dómstóllinn átti fyrst að kveða upp úrskurð þann 28. september 2009, en úrskurðinum hefur ítrekað verið frestað.
Þrýstu á stjórnvöld !
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
