Hjálparákallsmál

Víetnam: verkalýðsleiðtogarnir Tran Quoc Hien og Doan Van Dien fangelsaðir

Hjálparákall maí 2010

 

Doan_Van_Dien

Doan Van Dien

 

Sameiningarsamtök verkamanna og bænda (SSVB) er víetnamskt verkalýðsfélag sem stofnað var 2006 til að standa vörð um réttindi vinnandi fólks. Sjálfstæð verkalýðsfélög eru ekki leyfð í Víetnam og SSVB berst einnig fyrir réttinum til að stofna og taka þátt í verkalýðsfélögum án afskipta stjórnvalda.

Þrír leiðtogar SSVB voru handteknir í nóvember 2006 í herferð stjórnvalda gegn andófsmönnum. Einn þeirra, Doan Van Dien, er enn í fangelsi, en hann var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi þann 10. desember 2007.

Tran_Quoc_Hien

Tran Quoc Hien

 

Tran Quoc Hien, framkvæmdastjóri lögmannsfyrirtækis í Ho Chi Minh-borg, var handtekinn þann 12. janúar 2007. Fyrirtæki hans veitti ráðgjöf til bænda sem urðu fyrir því að ríkið tók jarðir þeirra eignarnámi. Hann hafði verið valinn málsvari SSVB tveimur dögum áður. Réttarhöldin yfir honum fóru fram þann 15. maí 2007 og var hann dæmdur í fimm ára fangelsi. Hann er enn á bak við lás og slá.

Amnesty International telur að þessir menn hafi verið handteknir vegna afskipta sinna af verkalýðsbaráttu. Þeir eru samviskufangar, sem haldið er einungis vegna þess að þeir hafa nýtt sér félaga- og tjáningarfrelsi sitt með friðsamlegum hætti. Þessi réttindi eru tryggð í alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi sem Víetnam er aðili að.

 

Þrýstu á stjórnvöld !

Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica