Hjálparákallsmál

Kosóvó (Serbía) - ekkert réttlæti vegna dráps á tveimur mótmælendum

Hjálparákall maí 2010

 

Arben_Xheladin

Arben Xheladini

 

Lögreglumenn drápu Mon Balaj, 26 ára, og Arben Xheladini, 34 ára, þann 10. febrúar 2007. Þeir voru þátttakendur á fjöldafundi Kosóvó-Albana í höfuðborg Kosóvó, Pristina, til stuðnings sjálfstæði Kosóvó. Lögreglumennirnir voru meðlimir rúmenskrar lögreglusveitar sem starfaði fyrir sveitir Sameinuðu þjóðanna í Kosóvó.

 

Mon_Balaj

Mon Balaj

 

Lögreglan notaði táragas og gúmmíkúlur til að dreifa mannfjöldanum. Mon Balaj og Arben Xheladini dóu af höfuðmeiðslum eftir að hafa verið skotnir með gúmmíkúlum. Áttatíu og sjö aðrir særðust. Þó að Sameinuðu þjóðirnar hafi rannsakað málið og komist að þeirri niðurstöðu að „óþekktir“ rúmenskir lögreglumenn beri ábyrgðina hefur enn enginn þurft að sæta ábyrgð.

Foreldrar Mon Balaj og Arben Xheladini lögðu fram kvörtun gegn sveitum Sameinuðu þjóðanna í mars 2008 til mannréttindanefndar sem komið var á laggirnar til að fjalla um kærur vegna starfsmanna sveitanna. Mannréttindanefndin hefur ekki umboð til að rannsaka sakamál, en getur lagt til að slík rannsókn fari fram.

Sveitir Sameinuðu þjóðanna hafa ítrekað reynt að hindra umfjöllun mannréttindanefndarinnar um þetta mál, meðal annars með því að neita að mæta fyrir nefndina. Auk þess hafa sveitir Sameinuðu þjóðanna reynt að koma í veg fyrir frekari málarekstur með því að bjóða fórnarlömbum og fjölskyldum þeirra bætur samþykki þau að láta málin niður falla. Loks settu sveitirnar nýja reglugerð í október 2009 sem gæti komið í veg fyrir frekari umfjöllun mannréttindanefndarinnar á kvörtununum.

 

Þrýstu á stjórnvöld !

Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali



 




RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica cmscms - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.