Sádi-Arabía: Suliamon Olyfemi - farandverkamaður í hættu á að vera tekinn af lífi
Hjálparákall júní 2010

Suliamon Olyfemi
Suliamon Olyfemi frá Nígeríu bíður dauðadóms í Sádi-Arabíu eftir óréttlát réttarhöld. Hann var handtekinn í fjöldahandtökum á Afríkubúum í september 2002 eftir að lögreglumaður lést í átökum við farandverkamenn. Hann hefur alltaf haldið fram sakleysi sínu.
Eftir handtökuna var Suliamon Olyfemi látinn setja fingraför sín á skjöl á arabísku sem hann gat ekki lesið. Mögulegt er að fingraförin hafi verið talin ígildi undirskriftar og að skjölin hafi verið notuð gegn honum við réttarhöldin. Réttarhöldin sjálf fóru fram á arabísku og Olyfemi fékk engan túlk til að aðstoða sig og réttargögn voru ekki þýdd. Suliamon Olyfemi fékk enga lögfræðiaðstoð og var dæmdur til dauða síðari hluta árs 2004.
Árið 2007 tjáði Mannréttindanefnd Sádi-Arabíu að yfirréttur hefði staðfest dauðadóminn yfir Suliamon Olyfemi. Hann hefur því enga frekari möguleika á áfrýjun og gæti verið tekinn af lífi hvenær sem er. Að minnsta kosti átta manns voru teknir af lífi fyrstu þrjá mánuði árs 2010, þar á meðal einn útlendur ríkisborgari.
Þrýstu á stjórnvöld !
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:
