Hjálparákallsmál
Túnis: Ali Ben Salem - áttræður baráttumaður sætir áreitni og hótunum
Hjálparákall júní 2010

Ali Ben Salem
Ali Ben Salem, sem er áttræður, sætir enn áreitni og hótunum af hálfu öryggisyfirvalda í Túnis vegna mannréttindastarfs hans.
Ali Ben Salem er upphafsmaður nokkurra mannréttindasamtaka og rekur svæðisskrifstofu Túnísku mannréttindasamtakanna á heimili sínu, en samtökin eru ein elstu samtök í Túnis. Öryggisyfirvöld hafa vaktað heimili hans frá því í september 2005 og einungis leyft nánum fjölskyldumeðlimum að heimsækja hann, eftir að hafa skoðað persónuskilríki þeirra. Skorið var á síma hans og internetaðgang árið 2005 og hann óttast að farsími hans sé hleraður. Öryggisyfirvöld fylgjast með öllum ferðum hans og hafa meinað honum að sækja fundi.
Öryggisyfirvöld handtóku Ali Ben Salem fyrir tíu árum. Hann var færður á lögreglustöð í Túnis þar sem hann var laminn og sparkað í hann og hann skilinn eftir í blóði sínu nær dauða en lífi á byggingarsvæði. Hann lagði inn kvörtun árið 2005 til nefndar Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum sem úrskurðaði að hann hefði sætt pyndingum og hvatti yfirvöld í Túnis að gera úrbætur.
Ali Ben Salem þjáist af alvarlegum bakverkjum og er veill fyrir hjarta. Yfirvöld hafa neitað að láta hann hafa heilsugæslukort, sem tryggir honum ókeypis heilsugæslu sem fyrrum hermanni, eða greiða honum lífeyri sem fyrrum opinberum starfsmanni. Hann fær ekki vegabréf og á yfir höfði sér ákæru fyrir að „breiða út ósannar sögur sem líklegar eru til að raska almannareglu“ vegna opinberrar yfirlýsingar hans árið 2006 þar sem hann fordæmir pyndingar í fangelsum í Túnis.
Þrýstu á stjórnvöld !
Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

