Hjálparákallsmál

Svasíland: - Baráttumaðurinn Wandile Dludlu pyndaður

Hjálparákall júní 2010

 

Wandile_Dludlu

Wandile Dludlu

 

Baráttumaðurinn Wandile Dludlu var yfirheyrður og að sögn pyndaður meðan hann var í ólöglegu varðhaldi þann 4. september 2009. Minna en þremur vikum síðar réðust fangaverðir á hann fyrir utan fangelsi. Wandile Dludlu kærði báðar árásirnar til lögreglu en lítið hefur verið unnið í málunum til þessa.

Samtök Wandile Dludlu voru bönnuð þegar harkaleg löggjöf gegn hryðjuverkum var samþykkt árið 2008. Hann var á heimleið frá Suður-Afríku, þar sem hann hafði tekið þátt í mótmælum, þegar lögregla stöðvaði för hans og hann neyddur inn í lögreglubifreið. Lögreglumennirnir sýndu enga handtökuskipun en engu að síður var hann handtekinn og honum haldið í varðhaldi á Mbabane lögreglustöðinni í klukkutíma áður en honum var ekið út í skóg. Þar var hann neyddur til að liggja á jörðinni og úlnliðir hans bundnir fast við ökklana. Hann sætti yfirheyrslu lögreglu í þessari stöðu í nokkrar klukkustundir og að sögn var plastpoka ítrekað brugðið um höfuð hans þannig að honum lá við köfnun. Hann var leystur úr haldi án ákæru nokkrum klukkutímum síðar. Þá blæddi honum, hann þjáðist af vökvaskorti og var í losti.

Þann 21. september 2009 beið Wandile Dludlu ásamt öðrum baráttumönnum og blaðamönnum fyrir utan  Matsapha-fangelsi eftir því að baráttumaðurinn Mario Masuku yrði leystur úr haldi, en hann hafði verið sýknaður þann dag af ákæru sem lögð var fram á grundvelli hryðjuverkalaganna. Án nokkurrar viðvörunar réðust fangaverðir á hópinn. Wandile Dludlu fékk spörk og var laminn niður. Ljósmyndir af vettvangi sýna að fangaverðirnir virðast hafa ráðist sérstaklega gegn honum en lögregla hefur hunsað þau sönnunargögn.

 

Þrýstu á stjórnvöld !

Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Bréfið í word-skjali

Bréfið í vefskjali







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica