Hjálparákallsmál

Víetnam: Þaggað niður í stjórnarandstæðingi

Hjálparákall ágúst 2008

Truong_Quoc_Huy

 

Truong Quoc Huy

 

Truong Quoc Huy afplánar nú sex ára fangelsisdóm fyrir friðsamlegar stjórnmálaskoðanir sínar. Lögreglumenn í borgaralegum klæðum handtóku hann á internetkaffihúsi í Ho Chi Minh-borg þann 18. ágúst 2006.

Hann hafði áður verið handtekinn á heimili sínu í október 2005, ásamt tveimur bræðrum sínum og vinkonu, en þá ruddust 50 lögreglumenn inn á heimilið og lömdu þau og spörkuðu í þau. Þau höfðu tekið þátt í spjallborði á netinu en yfirskrift umræðunnar þar var „rödd fólks í Víetnam og erlendis“.

Truong Quoc Huy, bróðir hans Truong Quoc Tuan og vinur þeirra voru ákærð fyrir „athæfi sem miðar að því að kollvarpa ríkisstjórn alþýðunnar“ og haldið í níu mánuði. Þann tíma fengu þau ekki lögfræðiaðstoð eða heimsókn frá fjölskyldum sínum. Eftir að honum var sleppt úr haldi sagði Truong Quoc Huy að hann myndi halda áfram að gagnrýna ríkisstjórnina og lýsti yfir stuðningi við Bloc 8406, sem er undirskriftalisti á netinu er hvetur til friðsamlegra pólitískra umbóta og virðingar fyrir mannréttindum. Þau ummæli gætu hafa leitt til handtöku hans þann 18. ágúst 2006.

Réttað var yfir Truong Quoc Huy þann 29. janúar 2008. Fjölskylda hans fékk engar fréttir af honum fyrir þann tíma og vissi ekki hvar hann var í haldi. Hann var ákærður samkvæmt 88. grein refsilaggjafar landsins fyrir að „hafa í frammi áróður gegn Sósíalíska lýðveldinu Víetnam“ og dæmdur í sex ára fangelsi auk þriggja ára stofufangelsis.

Amnesty International telur hann vera samviskufanga og að hann sé í haldi fyrir það eitt að nýta sér tjáningar- og félagafrelsi sitt.

 

Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Smelltu hér til að sjá bréfið á Word-formi

Smelltu hér til að sjá bréfið á vefsíðuformi







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica