Hjálparákallsmál

Laos: Í fangelsi eftir óréttlát réttarhöld

Hjálparákall ágúst 2008

Thao_MouaPa_Fue_Khang

Thao Moua (tv.) og Pa Fue Khang (th.)

 

Thao Moua og Pa Fue Khang, sem báðir tilheyra Hmong þjóðarbrotinu í Laos, afplána nú 12 og 15 ára fangelsisdóma fyrir að aðstoða tvo evrópska blaðamenn og túlk þeirra.

Blaðamennirnir voru að rannsaka felustaði Hmong í frumskógum Laos. Hmong-fólkið sætir reglulega árásum hersins í Laos og neyðist til að lifa á flótta, sem eykur hættu meðal þeirra á hungursneyð og sjúkdómum.

Thao Moua, Pa Fue Khang og Char Yang unnu sem leiðsögumenn fyrir hópinn þegar þeir voru handteknir þann 4. júní 2003. Fregnir herma að leiðsögumennirnir þrír hafi verið settir í ökklajárn meðan þeir biðu réttarhalda og að þeir hafi verið lamdir með prikum og reiðhjólakeðjum. Thao Moua og Pa Fue Khang voru leiddir fyrir rétt, ásamt blaðamönnunum og túlknum, í Xieng Khouang-héraði þann 30. júní 2003. Char Yang náði að flýja úr varðhaldi, en var dæmdur í fjarvist sinni.

Réttarhöldin stóðu ekki yfir nema í tæpa þrjá tíma. Thao Moua og Pa Fue Khang nutu engrar lögfræðiaðstoðar og svo virðist sem að dómurinn yfir þeim hafi verið fyrirfram ákveðinn. Allir sem leiddir voru fyrir réttinn fengu langa fangelsisdóma; en blaðamönnunum og túlknum var sleppt og þeir reknir úr landi þann 9. júlí 2003. Thao Moua og Pa Fue Khang voru sendir í Samkhe fangelsi í Vientiane, þar sem fangar er tilheyra Hmong þjóðarbrotinu eiga á hættu að sæta pyndingum og annarri illri meðferð og vera neitað um læknisþjónustu.

Amnesty International telur að réttarhöldin hafi verið óréttlát og af pólitískum toga spunnin.

 

Hér að neðan eru bréf sem þú getur prentað út og sent til stjórnvalda:

Smelltu hér til að sjá bréfið á Word-formi

Smelltu hér til að sjá bréfið á vefsíðuformi







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica