Hjálparákall

10 mínútur á mánuði bjarga mannslífum

„Hjálparákall“ kallast aðgerðanet hundruða þúsunda einstaklinga um heim allan, sem gefa sér tíma í hverjum mánuði til að hjálpa nokkrum þeirra fjölda einstaklinga, sem sitja í fangelsum vegna trúar sinnar, skoðana, eða uppruna og hvorki hafa beitt né hvatt til ofbeldis. Meira

 

Viðbragðslistinn

Taktu þátt !

Samtökin eru skipulögð þannig að fólk getur tekið þátt í starfseminni með ýmsu móti. Unnt er að gerast félagi, reiða fram frjáls framlög eða gefa tíma sinn og orku til hjálpar þeim sem þurft hafa að þola mannréttindabrot. Meira

 

Góðar fréttir

Góðar fréttir: baráttumaður fyrir réttindum frumbyggja í Mexíkó leystur úr haldi

Amnesty International fagnar því að mexíkóskur baráttumaður fyrir réttindum frumbyggja hafi verið látinn laus úr fangelsi eftir tveggja ára fangelsisvist fyrir upplognar morðákærur.

 

Góðar fréttir: yfirvöld í Hvíta-Rússlandi leysa úr haldi mann sem neitaði að gegna herþjónustu af samviskuástæðum

Amnesty International fagnar því að stjórnvöld í Hvíta-Rússlandi hafi leyst úr haldi mann, sem dæmdur var í eins árs fangelsi fyrir að „koma sér undan herþjónustu“.

 

Góðar fréttir: Bretland greiðir skaðabætur til manns sem ranglega var bendlaður við hryðjuverk

Amnesty International fagnar ákvörðun breskra stjórnvalda um að greiða skaðabætur til flugkennarans Lotfi Raissi, sem var ranglega ásakaður um að hafa þjálfað flugræningjana sem gerðu árásir í Bandaríkjunum þann 11. september 2001.

 

Fleiri góðar fréttir





RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefforitunvefforitun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.