Helstu upplýsingar
Helstu upplýsingar
Íslandsdeild Amnesty International starfar samkvæmt samþykktum heimsþings alþjóðasamtakanna. Stefnu deildarinnar má lesa hér.
Í ársbyrjun 2009 voru félagar í Amnesty International á Íslandi rúmlega 10.000.
Í ársbyrjun 2009 voru um 1.800 félagar deildarinnar skráðir í ýmislegt aðgerðastarf í þágu mannréttinda. Rúmlega 1.400 eru í hjálparákallsnetinu, rúmlega 300 í skyndiaðgerðanetinu, auk nokkurs fjölda í öðru aðgerðastarfi.
Aðalfundur Íslandsdeildar Amnesty International, sem haldinn er árlega og allir félagar geta setið, kýs 5 manna stjórn og tvo varamenn. Stjórnin sér um yfirstjórn og stefnumótun deildarinnar. Stjórn Íslandsdeildarinnar tekur þátt í lýðræðislegri ákvarðanatöku á vettvangi alþjóðahreyfingarinnar Amnesty International með þátttöku í heimsþingum og fundum alþjóðasamtakanna. Stjórn Íslandsdeildar Amnesty International hefur yfirumsjón með starfi skrifstofu deildarinnar.
Í ársbyrjun 2009 voru starfsmenn skrifstofu þrír.

