Stefna

Stefna og starfsáherslur Íslandsdeildar Amnesty International

2006-2010

I HLUTI

ÁHERSLUR

1.1 Áherslur Íslandsdeildar Amnesty International

Íslandsdeild Amnesty International er lifandi og kröftug hreyfing fólks sem stendur vörð um mannréttindi.

Íslandsdeild Amnesty International er sýnileg, fjölbreytt og vaxandi hreyfing sem vekur athygli á mannréttindum og grípur til aðgerða til varnar þeim.

Íslandsdeild Amnesty International stendur að mannréttindafræðslu, virkjar fólk í starfi sínu og eflir það í þátttöku til verndar mannréttindum.

Íslandsdeild Amnesty International vinnur að og stendur vörð um langtímamarkmið heimssamtakanna og leggur sig fram við að tryggja trausta ímynd þeirra og trúverðugleika..

Starf Íslandsdeildar Amnesty International einkennist af skýrri ábyrgðarskyldu, góðum stjórnunarháttum, ríkri lýðræðishefð, sveigjanleika, árangursríku samráðs- og ákvarðanaferli, gagnsæi í fjármálum og stöðugu endurmati.

Íslandsdeild Amnesty International stendur fjárhagslega traustum fótum og tekjur deildarinnar eru nýttar á skilvirkan og árangursríkan hátt til að ná fram markmiðum samtakanna.

1.2 Einkunnarorð

Alþjóðleg eining og starfsemi í þágu einstakra þolenda mannréttindabrota, algildi og órjúfanleiki mannréttinda, óhlutdrægni og sjálfstæði, lýðræði og gagnkvæm virðing.

1.3 Merki Amnesty International

Merki Íslandsdeildar Amnesty International er logandi kerti með gaddavír.

Kertið logar ekki fyrir okkur, heldur fyrir alla þá sem okkur tókst ekki að bjarga úr fangelsi, sem voru skotnir á leið í fangelsi, sem voru pyndaðir, rænt, eða „hurfu“. Fyrir þá logar kertið.“(Peter Benenson stofnandi Amnesty International)


 

II. HLUTI

GRUNDVÖLLUR OG HLUTVERK

 

2.1 Grundvöllur

 

Íslandsdeild Amnesty International er hluti af alþjóðasamtökunum  Amnesty International. Deildin fylgir markmiðum og starfsreglum samtakanna og starfar í anda þeirra í hvívetna.

Íslandsdeild Amnesty International stendur vörð um mannréttindi á grundvelli alþjóðlegrar einingar, aðgerða í þágu einstakra þolenda mannréttindabrota, algildis og órjúfanleika mannréttinda, óhlutdrægni og sjálfstæðis, lýðræðis og gagnkvæmrar virðingar.

Íslandsdeild Amnesty International  er óháð öllum stjórnvöldum, stjórnmálahreyfingum og trúarhreyfingum og styður hvorki né er andsnúin skoðunum þeirra einstaklinga sem samtökin vinna með og fyrir.

Íslandsdeild Amnesty International hvetur til áhrifaríkra aðgerða í þágu fólks sem ekki fær notið þeirra réttinda sem felast  í  Mannréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna og alþjóðlegum mannréttindareglum.

 

2.2. Hlutverk

 

Íslandsdeild Amnesty International grípur til aðgerða í því skyni að hindra og stöðva alvarleg brot á réttinum til líkamlegrar og andlegrar reisnar, frelsi til sannfæringar og tjáningar hennar og réttinum til að þurfa ekki að þola mismunun, í samræmi við þann tilgang samtakanna að efla virðingu fyrir öllum mannréttindum. 

 

2.3. Íslandsdeild Amnesty International  rækir hlutverk sitt með því að:

 

Fræða um mannréttindi og brot á þeim.

Skapa vettvang fyrir aðgerðir í þágu einstaklinga og hópa, sem fá ekki notið mannréttinda.

Þrýsta á stjórnvöld og aðra að virða mannréttindi.

Fylgja í starfsemi sinni stefnu Amnesty International.

  

 

III HLUTI

MANNRÉTTINDASTEFNA

 

Íslandsdeild Amnesty International hefur að leiðarljósi í mannréttindastarfi sínu styrkingu mannréttindakerfisins, verndun tjáningarfrelsis, að útrýma refsileysi, vinnu í þágu einstakra þolenda mannréttindabrota, aukna ábyrgðarskyldu fyrirtækja í mannréttindamálum og eflingu mannréttindafræðslu. Íslandsdeildin skuldbindur sig til virkrar þátttöku í alþjóðlegum herferðum Amnesty International.

Til að ná fram markmiðum mannréttindastefnunnar nýtir Íslandsdeild Amnesty International afl skrifstofu og starfsfólks, hópastarf, skyndiaðgerðanet, hjálparákallsnet, fréttabréf, heimasíðu, netfangalista, fjölmiðla og aðrar leiðir sem færar eru í því skyni.

 

Starfsáherslur alþjóðasamtakanna fram til 2010 eru:

 

 

3.1. Efla gagnkvæma virðingu og berjast gegn mismunun

 

Íslandsdeild Amnesty International berst gegn kynþáttafordómum og hvers kyns mismunun í garð minnihluta- og jaðarhópa með því að þrýsta á yfirvöld að bæta lög  og vekja athygli á einstökum málum.

 

3.2 Krefjast réttlætis og berjast gegn refsileysi

 

Íslandsdeild Amnesty International stendur gegn árásum á mannréttindakerfið með því að þrýsta á yfirvöld að fara að alþjóðlegum mannréttindalögum.Íslandsdeild Amnesty International vinnur gegn refsileysi með því að þrýsta á ríki að gerast aðilar að alþjóðlega sakamáladómstólnum og með því að krefjast þess að réttað sé yfir þeim sem fremja mannréttindabrot.

Íslandsdeild Amnesty International krefst þess að aðilar óháðir ríkisvaldinu sem fremja mannréttindabrot séu látnir sæta ábyrgð.

Íslandsdeild Amnesty International fræðir félaga og almenning um refsileysi og skaðleg áhrif þess á mannréttindi.

 

3.3. Vinna í þágu andlegrar og líkamlegrar reisnar alls fólks

 

Íslandsdeild Amnesty International berst gegn dauðarefsingum með því að taka upp mál einstaklinga og þrýsta á ríkisstjórnir að fella dauðarefsingu úr lögum.

Íslandsdeild Amnesty International vinnur  að lausn samviskufanga og að vernd baráttufólks fyrir mannréttindum.

Íslandsdeild Amnesty International berst gegn pyndingum, illri meðferð og ,,mannshvörfum“.

  

3.4. Verja réttindi fólks í stríðsátökum

 

Íslandsdeild Amnesty International verst árásum á mannréttindi og alþjóðlega mannúðarlöggjöf í stríðsátökum með því að vekja athygli á slíkum brotum og krefjast úrbóta.

Íslandsdeild Amnesty International berst fyrir haldbærri og gagnsærri stjórn á viðskiptum með vopn með því að taka þátt í herferðinni ,,komum taumhaldi á vopnin” og þrýsta á yfirvöld að styðja gerð alþjóðlegs vopnaviðskiptasáttmála.


3.5  Stuðla að og vernda réttindi fólks sem hefur flosnað upp

 

Íslandsdeild Amnesty International berst fyrir réttindum flóttafólks, hælisleitenda og fólks sem hefur flosnað upp frá heimilum sínum og er á vergangi innan landamæra eigin ríkis með því að auka skilning á orsökum flótta og hvetja til aukinnar lagaverndar.

Íslandsdeild Amnesty International tekur upp málefni einstaklinga sem leita hælis hér á landi ef þeim er hætta búin við endursendingu.

Íslandsdeild Amnesty International vinnur með þeim samtökum sem hafa að markmiði að verja réttindi flóttafólks.

Íslandsdeild Amnesty International  styrkir vernd innflytjenda og farandfólks með því að fá yfirvöld til að gerast aðilar að SÞ samningi og Evrópusáttmála um réttindi farandfólks.

 

3.6  Berjast fyrir réttindum kvenna og stúlkna

 

Íslandsdeild Amnesty International berst  fyrir réttindum kvenna og stúlkna með því að taka þátt í herferðinni gegn ofbeldi á konum.

Íslandsdeild Amnesty International vinnur með kvennahreyfingunni að því að auka vitund og efla fræðslu sem miðar að því að binda enda á ofbeldi gegn konum og stúlkum.

Íslandsdeild Amnesty International þrýstir á yfirvöld að gerðar verði nauðsynlegar lagabreytingar og opinber aðgerðaáætlun til að vernda konur fyrir ofbeldi.

 

3.7    Vinna að framgangi efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra réttinda

 

Íslandsdeild Amnesty International vinnur að framgangi efnahagslegra, félagslegra og menningarlegra réttinda og áréttar órjúfanleika allra mannréttinda með því að efla þekkingu á þeim réttindum innan og utan samtakanna og þátttöku í alþjóðlegri herferð um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi sem hófst árið 2007.

 

 

IV. HLUTI

SKIPULAGSSTEFNA

 

Íslandsdeild Amnesty International hefur að leiðarljósi í innra starfi deildarinnar, að leysa úr læðingi þá orku sem býr í félögunum og grípa til áhrifaríkra aðgerða með árangursríkum samskiptum og skýrri ábyrgðarskyldu.

 

Starfsáherslur alþjóðasamtakanna fram til 2010 eru:

 

4.1 Tryggja gæði alls útgefins efnis

 

Íslandsdeild Amnesty International tryggir að innihald og gæði séu aðal efnis sem birt er á vegum deildarinnar.

Íslandsdeild Amnesty International  tryggir að allt efni sé ætíð yfirlesið áður en það birtist.

Íslandsdeild Amnesty International eflir ritstjórn fréttabréfs og heimasíðu og fjölgar útgefnu efni.

Íslandsdeild Amnesty International nýtir heimildir um rannsóknir í eigin landi ef þörf krefur.

 

4.2. Grípa til áhrifaríkra aðgerða

 

Íslandsdeild Amnesty International eflir og þróar herferðarstarf með góðum undirbúningi og auknu fjármagni í framkvæmd þeirra.

Íslandsdeild Amnesty International efnir til námskeiða með félögum um innihald og markmið herferða.

Íslandsdeild Amnesty International eflir samvinnu við önnur samtök sem vinna að sömu markmiðum.

Íslandsdeild Amnesty International nýtir  sérþekkingu og áhuga félaga í aðgerðum.

Íslandsdeild Amnesty International eykur skilning og áhuga félaga á langtímaverkefnum í þágu einstaklinga.

Íslandsdeild Amnesty International eflir  mannréttindafræðslu til félaga, í skólum og meðal starfsstétta.

Íslandsdeild Amnesty International styrkir innra skipulag til að geta brugðist betur við neyðarástandi.

  

4.3 Árangursrík samskipti

 

Íslandsdeild Amnesty International nýtir á skapandi og árangursríkan hátt útsendingalista til félaga.

Íslandsdeild Amnesty International nýtir heimasíðu til að koma efni á framfæri bæði til félaga og annarra.

Íslandsdeild Amnesty International upplýsir félaga vel um málefni til að gera þá hæfari til að grípa til aðgerða og verja mannréttindi.

Íslandsdeild Amnesty International eykur útgáfu og birtingu  efnis á íslensku.

Íslandsdeild Amnesty International eykur fjölmiðlavinnu og tryggir að kynntar séu útgefnar skýrslur og aðgerðir frá öllum heimshornum.

Íslandsdeild Amnesty International styrkir viðurkenningu og kennsl á nafni og merki samtakanna og hvað samtökin standa fyrir.

 

4.4. Virkja fólk

 

Íslandsdeild Amnesty International styrkir hópastarf með reglulegum námskeiðum og þjálfun.

Íslandsdeild Amnesty International eykur þátttöku í skyndiaðgerðaneti.

Íslandsdeild Amnesty International eykur þátttöku í hjálparákalli.

Íslandsdeild Amnesty International eykur fjölbreytni í aðgerðastarfi sem höfðar til ungs fólks.

Íslandsdeild Amnesty International fjölgar félögum með augliti til auglitis aðferðinni þannig að árið 2010 verði þeir 10.000.

Íslandsdeild Amnesty International hlúir að fjölbreytileika, fjölmenningu  og jafnræði.

Íslandsdeild Amnesty International hlúir að félögum þannig að þeir viðhaldi félagsaðild með því að bjóða námskeið og þjálfun, veita félögum viðurkenningu og umbun.

 

4.5 Auka kraft samtakanna með sveigjanlegu skipulagi

 

Íslandsdeild Amnesty International  þróar skipulag í deildinni sem svarar til þeirra krafna sem gerðar eru til deildarinnar.

Íslandsdeild Amnesty International tryggir góða starfshætti meðal stjórnar, starfsfólks, virkra félaga og annarra sem koma að starfi deildarinnar.

Íslandsdeild Amnesty International býr yfir starfslýsingum fyrir öll launuð störf svo og stjórnar- og önnur ábyrgðastörf. Verkaskipting stjórnar og starfsfólks er skýr.

Íslandsdeild Amnesty International  hefur í heiðri reglur og leiðbeiningar alþjóðasamtakanna um góða starfshætti og skapandi forystu.

 

4.6. Auka traust almennings á okkur

 

Íslandsdeild Amnesty International gætir þess að allar fjárhagslegar skyldur séu ræktar í samræmi við bestu starfshætti.

Íslandsdeild Amnesty International gerir ríkar siðferðilegar kröfur til allra sem koma að starfseminni í öllum samskiptum innan samtakanna sem utan.

Íslandsdeild Amnesty International viðhefur góða starfshætti í samskiptum við einstaklinga og stofnanir innan og utan samtakanna.  

 

V HLUTI

FJÁRMÁLASTEFNA

 

Íslandsdeild Amnesty International hefur að leiðarljósi í tekjuöflun og útgjöldum deildarinnar að stuðla að fjárhagslegum vexti og tryggja styrka fjármálastjórnun.

 

Starfsáherslur alþjóðasamtakanna fram til 2010 eru:

 

5.1 Vaxa fjárhagslega

 

Íslandsdeild Amnesty International viðheldur og styrkir þann vöxt sem hefur verið í deildinni síðustu ár.

Íslandsdeild Amnesty International mun árið  2010 hafa 10.000 félaga í deildinni.

Íslandsdeild Amnesty International byggir fyrst og fremst á framlögum félaga og tryggir þannig sjálfstæði. 80% heildartekna deildarinnar koma frá félögum.

Íslandsdeild Amnesty International hefur einnig tekjur af kortasölu, frjálsum framlögum, sölu á kynningarvörum, minningarkortum og  styrkjum.

Íslandsdeild Amnesty International  tryggir að móttaka styrkja frá fyrirtækjum sé í samræmi við meginreglur Amnesty International.

Íslandsdeild Amnesty International leggur meira af mörkum til aðalstöðvanna en fastaframlagi deildarinnar nemur.

Íslandsdeild Amnesty International býr yfir varasjóði sem nemur sex mánaða rekstrarkostnaði deildarinnar.

 

5.2 Styrkja fjármálastjórnunina

 

Íslandsdeild Amnesty International setur fram ársreikninga deildarinnar í samræmi við framsetningu á ársreikningum heimssamtakanna og góðar reikningsskilavenjur.

Íslandsdeild Amnesty International setur fram á gagnsæjan og aðgengilegan hátt fyrir styrktaraðila og aðra upplýsingar um tekjur og kostnað einstakra verkefna og málaflokka.  

Íslandsdeild Amnesty International hefur að leiðarljósi ábyrga fjármálastjórn bæði gagnvart landslögum og innri reglum Amnesty International.

Íslandsdeild Amnesty International er góður atvinnuveitandi og  tryggir réttlát launakjör og réttindi starfsfólks í hvívetna.

Íslandsdeild Amnesty International gætir hagkvæmni og aðhalds í rekstri deildarinnar.

Íslandsdeild Amnesty International hefur í allri fjárhagsumsýslu að leiðarljósi að það fé sem deildin hefur til umráða nýtist sem best í þágu fórnarlamba mannréttindabrota.

 

 




RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.