MSÞ vatnaskil í sögu mannréttinda

MANNRÉTTINDAYFIRLÝSING SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA - VATNASKIL Í SÖGU MANNRÉTTINDA

Eleanor Roosevelt með Mannréttindayfirlýsinguna

Eleanor Roosevelt með Mannréttindayfirlýsinguna

 

Árið 2008 eru 60 ár frá því að mikilvægasta skjal hinnar alþjóðlegu herferðar í þágu mannréttinda fyrir alla leit dagsins ljós. Mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna – sem staðfestir 30 grundvallarréttindi – var samþykkt af aðildarríkjum SÞ hinn 10. desember 1948. Yfirlýsingin á upphaf sitt í frumkvæði ríkisstjórna en er nú sameiginlegt markmið fólks um heim allan.

Í aðdraganda 60 ára afmælisins mun Amnesty International standa fyrir ýmsum viðburðum til þess að vekja athygli á Mannréttindayfirlýsingunni og beina sjónum að því sem gera þarf til þess að hugsjónin um mannréttindi fyrir alla verði að veruleika. Sérhver einstaklingur hefur réttindi og hverju okkar ber skylda til að láta að okkur mannréttindi varða, ekki einungis í okkar þágu heldur einnig í þágu annarra. Við trúum að mannréttindabrot komi öllum við hvar svo sem þau eru framin Við heitum því að virkja kraft einstaklinga til aðgerða í þágu réttlætis og jafnréttis

Okkur misbýður þegar leiðtogar okkar brjóta á réttindum okkar og erum staðráðin í að láta þá sæta ábyrgð Við erum staðráðin í að vinna að heimi þar sem hver og einn getur notið mannréttinda sinna. Við munum koma skilaboðum Mannréttindayfirlýsingarinnar, og þeirri von sem í henni felst, á framfæri á öllum svæðum í heiminum á 60 ára árstíð hennar





RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica