Össur
Skarphéðinsson utanríkisráðherra
Utanríkisráðuneytið
Rauðarárstíg
25
150
Reykjavík
Háttvirti
ráðherra
Stjórnvöld nota
þvinguð mannshvörf sem kúgunartæki til að bæla niður andóf og stjórnarandstöðu
og til að ofsækja trúarhópa, stjórnmálahreyfingar og fólk af ákveðnum uppruna.
Hinn
20. desember 2006 samþykkti allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna Alþjóðlegan
samning gegn þvinguðum mannshvörfum. Markmið samningsins er að koma í veg fyrir
þvinguð mannshvörf, leiða sannleikann í ljós þegar slíkir glæpir eru framdir,
refsa þeim sem ábyrgð bera á þvinguðum mannshvörfum og veita fórnarlömbum og
fjölskyldum þeirra skaðabætur.
Ísland
undirritaði samninginn hinn 1. október 2008 en á eftir að fullgilda hann. Samningurinn
mun taka gildi þegar 20 ríki hafa fullgilt hann. Nígería varð 13 ríkið til að
gera slíkt þann 27. júlí 2009. Sjö ríki til viðbótar þurfa því að fullgilda
samninginn til þess að hann öðlist gildi.
Þvinguð
mannshvörf eru mjög alvarleg mannréttindabrot sem verður að stöðva. Ég hvet
íslensk yfirvöld til að fullgilda samninginn og hvetja önnur ríki til hins
sama.
Virðingarfyllst,