Mannréttindi í Kína - Ólympíuleikar í Peking

MANNRÉTTINDI Í KÍNA OG ÓLYMPÍULEIKARNIR Í PEKING

Nyi_thjodarleikvangurinn_i_Beijing

Nýi þjóðarleikvangurinn í Peking

Kínversk yfirvöld sviku gefin loforð um umbætur í mannréttindum í aðdraganda Ólympíuleikanna. Kínversk yfirvöld halda uppteknum hætti og ofsækja og refsa öllum þeim sem fara fram á virðingu fyrir mannréttindum. Yfirvöld hafa misst sjónar á þeim loforðum sem þau gáfu fyrir sjö árum þegar alþjóðlega Ólympíunefndin ákvað að sumarleikarnir 2008 færu fram í Peking.

Miklar vonir voru bundnar við að leikarnir hefðu jákvæð áhrif á mannréttindi í Kína. Þegar Peking var valin til að halda Ólympíuleikana ræddu bæði kínversk stjórnvöld og Alþjóðaólympíunefndin opinberlega um „einstæða arfleifð“ leikanna og áhrif þeirra á umbætur í mannréttindamálum í heiminum.

Þó að ýmsar jákvæðar breytingar hafi átt sér stað síðan þá, þar á meðal endurbætur á dauðarefsingarkerfinu og aukið frelsi til fréttaöflunar til handa erlendu fjölmiðlafólki, hafa aðrar breytingar til hins verra yfirskyggt þær.

Ólympíuleikarnir voru notaðir til að réttlæta varðhaldsvist án réttarhalda í Peking sem var liður í því að „hreinsa“ borgina fyrir ágúst 2008. Á sama tíma mátti sumt baráttufólk þola sífellt meiri áreitni, stofufangelsi og ósanngjörn réttarhöld.

 

Áhersluatriði

Amnesty International fer fram á verulegar umbætur á fjórum lykilsviðum. Þessi fjögur lykilsvið lúta að:

  • Dauðarefsingunni: Þó að aftökum fækki í Kína er landið enn heimsmethafi í beitingu dauðarefsingarinnar
  • Varðhaldsvist án réttarhalda: Stjórnvöld efldu varðhaldsvist án réttarhalda, sem kallast „endurmenntun gegnum vinnu“, til þess að „hreinsa“ Peking fyrir Ólympíuleikana í ágúst 2008.
  • Ritskoðun á netinu: „Eldveggurinn mikli í Kína“ er stórfelld hindrun í vegi tjáningarfrelsis og frjálsrar upplýsingaöflunar í Kína.
  • Tjáningarfrelsi: Amnesty International hvetur Kína til að hætta geðþóttahandtökum, hótunum og áreitni í garð baráttufólks fyrir mannréttindum.


Meira um aðdraganda Ólympíuleikanna:







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica