Baráttufólk kúgað

VIRÐIÐ RÉTT BARÁTTUFÓLKS

Logregla_handtekur_Falun_Gong_motmaelanda

Lögregla í Kína handtekur Falun Gong-mótmælanda

Baráttufólk fyrir mannréttindum í Kína býr við verulega hættu á mannréttindabrotum.

Kína breytti stjórnarskrá sinni í mars 2004 og þar stendur nú, meðal annars: „Ríkið virðir og verndar mannréttindi.“ Þrátt fyrir það er margt baráttufólk í fangelsi vegna friðsamlegrar tjáningar skoðana sinna og síaukinn fjöldi er í stofufangelsi fyrir sömu sakir.

Eftirliti lögreglu og geðþóttahandtökum er beitt í síauknum mæli við fjölskyldur baráttufólks fyrir mannréttindum með það fyrir augum, að því er virðist, að auka þrýsting á það.

Enn eru ákveðin ákvæði hegningarlaga notuð sem pólitískt tæki til að kæfa andóf. Ýmsir glæpir eru skilgreindir með rúmum hætti og fólk sem fæst við lögmætt og friðsamlegt mannréttindastarf er ákært fyrir afbrot eins og „aðskilnaðarstefnu“, „undirróður“, „brot gegn allsherjarreglu“ og „stuld á ríkisleyndarmálum“.

Amnesty International hvetur kínversk yfirvöld til að hætta að ráðast gegn baráttufólki og mannréttindafrömuðum með geðþóttahandtökum, kúgun og áreitni og leysa úr haldi alla sem fangelsaðir hafa verið fyrir slíkt starf.



 




RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.