HÆTTIÐ AFTÖKUM!

Dauðadæmdir glæpamenn við opin réttarhöld í Zhuzhou í Kína
Amnesty International telur líkur á að verulega hafi dregið úr aftökum frá því að hæstiréttur Kína hóf aftur að fara yfir öll dómsmál þar sem dauðarefsing var kveðin upp. Það var í janúar 2007. Engu að síður er Kína enn heimsmethafi í notkun á dauðarefsingum.
Dauðarefsingin og aðstæður á dauðadeildum í Kína eru lítilsvirðing við þau mannréttindi sem við erum jafnborin til. Engir þeirra, sem dæmdir eru til dauða, fá sanngjörn réttarhöld í samræmi við alþjóðleg mannréttindaviðmið.
Hægt er að kveða upp dauðarefsingu fyrir um 70 glæpi í Kína; fyrir afbrot eins skattsvik, fjárdrátt, mútuþægni og sum fíkniefnabrot.
Eina leiðin til að sannreyna að aftökum fari fækkandi er að Kína geri opinberar upplýsingar um dauðarefsinguna. Kína verður að halda áfram á umbótabraut með því að auka gegnsæi og tryggja að fjölskyldur og lögfræðingar dæmdra fái að hitta þá og geti nálgast upplýsingar um mál þeirra.
Kína hefur lýst því opinberlega yfir að landið stefni að afnámi dauðarefsingarinnar. Því er nauðsynlegt að Kína fækki verulega þeim flokkum glæpa sem hægt er að refsa fyrir með dauðarefsingu og afnema dauðarefsingu fyrir glæpi sem ekki teljast ofbeldisglæpir.
