Ritskoðun á netinu

FRELSI UNDAN RITSKOÐUN

Logregla_i_Kina_raedst_gegn_ologlegu_netkaffihusi_i_Guangzhou

Lögregla í Kína ræðst gegn ólöglegu netkaffihúsi í Guangzhou

Árið 2001, þegar Peking var valin til að halda Ólympíuleikana 2008, gáfu kínversk stjórnvöld eftirfarandi loforð: „Engar hömlur verða settar á fréttaflutning fjölmiðla eða ferðafrelsi fjölmiðlafólks í aðdraganda Ólympíuleikanna eða meðan á þeim stendur.“

En loforð Kína um „algjört fjölmiðlafrelsi“ er í hrópandi mótsögn við árásir kínverskra stjórnvalda um þessar mundir á blaðamenn, dagblöð og vefsíður, með þeim afleiðingum að samtök sem helga sig fjölmiðlafrelsi segja Kína „forystuþjóð á alþjóðavettvangi í að fangelsa fjölmiðlafólk“.

Ritskoðun á vefsíðum, bloggi og tölvupósti er einnig mikið áhyggjuefni. Talið er að um 30.000 lögreglumenn starfi við „Gullskjöldinn“ eða „Eldvegginn mikla í Kína“ og er hann talinn umfangsmesta og tæknilega háþróaðasta netsía í heiminum.

Þó að nýjar og tímabundnar reglugerðir hafið gefið erlendu fjölmiðafólki aukið svigrúm til að taka viðtöl í Kína fram að október 2008 hafa takmarkanir á aðgengi Kínverja að þeim fréttum verið auknar og eftirlit með fjölmiðlum í Kína hert.

Amnesty International hvetur kínversk stjórnvöld til að gefa fjölmiðlum innanlands sama frelsi og erlent fjölmiðlafólk nýtur. Yfirvöld ættu að hætta óréttmætri ritskoðun sinni á sjónvarpi, útvarpi, blöðum og vefmiðlum í Kína og grípa til tafarlausra ráðstafana til þess að koma í veg fyrir tilhæfulausar handtökur, kúgun og uppsagnir fjölmiðlafólks, sem brjóta í bága við tjáningarfrelsi þess.



 




RSS:

RSS
þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.