Varðhaldsvist án réttarhalda

SANNGJÖRN RÉTTARHÖLD FYRIR ALLA

Fra_adgerd_fulltrua_a_heimsthingi_AI_vegna_Olympiuleikanna

Frá aðgerð fulltrúa á heimsþingi AI 2007 vegna Ólympíuleikanna í Peking

Í maí 2006 juku borgaryfirvöld í Peking notkun á refsiúrræði sem kallast „endurmenntun gegnum vinnu“ til að „hreinsa“ borgina í aðdraganda Ólympíuleikanna. Þetta refsikerfi, sem hefur verið við lýði frá því á miðjum sjötta áratug síðustu aldar, beinist að þeim sem hafa framið minniháttar afbrot en teljast ekki glæpamenn. Þetta fólk er neytt til að vinna langan vinnudag og refsingin er sambærileg við nauðungarvinnu í fangelsum.

Hægt er að halda fólki í slíku varðhaldi í þrjú ár og unnt er að bæta fjórða árinu við. Þau afbrot sem refsa má fyrir með þessum hætti eru meðal annars ólögmætar auglýsingar, leigubílaakstur án leyfis, verslun og viðskipti án leyfis, flakk og betl. Yfirvöld geta einnig refsað fyrir friðsamleg mótmæli eða andóf.

Hundruð þúsunda einstaklinga eru talin dvelja í slíkum vinnubúðum um allt Kína og á sérhver þeirra á hættu að þola pyndingar eða illa meðferð.

Slík varðhaldsvist brýtur í bága við alþjóðasamninginn um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi. Hún brýtur í bága við réttindi handtekinna að vera leiddir svo skjótt sem auðið er fram fyrir dómara; réttinn til sanngjarnra réttarhalda; og bannið við nauðungarvinnu.

Amnesty International hefur hvatt kínversk yfirvöld til að leggja af „endurmenntun gegnum vinnu“ og önnur sambærileg refsiúrræði.







RSS:

RSS
Þetta vefsvæði byggir á Eplica