Tenglar
Tenglar
Amnesty International
Heimasíða alþjóðasamtakanna Amnesty International. Þar má nálgast mikið af upplýsingum um mannréttindaástandið í heiminum og margvísleg mannréttindabrot.
http://www.amnesty.org/en/contact
Á heimasíðu alþjóðasamtakanna geturðu einnig fengið upplýsingar um einstakar deildir Amnesty International og vefslóðir á heimasíður deildanna.
Íslensk samtök
Mannréttindaskrifstofan er óháð stofnun sem vinnur að framgangi mannréttinda með því að stuðla að rannsóknum og fræðslu og efla umræðu um mannréttindi á Íslandi.
Hugsjónagrundvöllur Rauða krossins er fólginn í markmiðunum sjö um mannúð, óhlutdrægni, hlutleysi, sjálfstæði, sjálfboðna þjónustu, einingu og alheimshreyfingu.
Alþjóðahús á Hverfisgötu 18, í miðbæ Reykjavíkur, er fyrst og fremst málsvari fólks af erlendum uppruna. Þar fer fram margvísleg starfsemi sem á að stuðla að fjölmenningarlegum samskiptum.
Markmið UNIFEM eru að; efla efnahagslegt öryggi og réttindi kvenna og gera þeim kleift að tryggja sér öruggt lífsviðurværi; efla þátttöku kvenna í stjórnun, pólitískri stefnumótun og ákvörðunartökuferli, friðarumleitunum og uppbyggingu í kjölfar átaka; stuðla að því að mannréttindi kvenna séu virt og að hverskonar ofbeldi gegn konum verði ekki liðið.
Samtök um kvennaathvarf reka kvennaathvarfið. Þau eru sömuleiðis virk í baráttunni fyrir jafnrétti kynjanna og eru í góðu samstarfi við önnur félagasamtök á því sviði.
Samtökin '78 eru hagsmuna- og baráttusamtök samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transgenders fólks á Íslandi. Markmið félagsins er að lesbíur, hommar, tvíkynhneigðir og transgender fólk verði sýnilegt og viðurkennt og njóti fyllstu réttinda í íslensku samfélagi.
Alþjóðleg samtök og stofnanir
Mannréttindasíða Sameinuðu þjóðanna
http://www.ohchr.org/EN/Pages/WelcomePage.aspx
Skrifstofa mannréttindafulltrúa Sameinuðu þjóðanna
Alþjóðleg mannréttindasamtök

