Undirskriftir
Herforingjaráð Egyptalands verður að hætta að rétta yfir borgurum fyrir herdómstólum

Ljóst er að herdómstólar í Egyptalandi brjóta á grundvallarmannréttindum eins og réttinum á sanngjörnum réttarhöldum og réttinum til að áfrýja til æðri dómsstiga. Frá því mótmælin hófust hafa herdómstólar í Egyptalandi réttað yfir 12.000 manns og dæmt u.þ.b. 8.000 almenna borgara fyrir glæpi eins og „ofbeldisverk“ og „brot á útgöngubanni“. Dómarnir hljóða frá nokkra mánaða fangelsi yfir í nokkur ár. Stundum er jafnvel kveðinn upp dauðadómur.
Nóg er komið af innantómum loforðum herstjórnarinnar um að leggja af herdómstóla í landinu. Nú verður að þrýsta af alefli á herforingjaráðið að láta af ósanngjörnum réttarhöldum í eitt skipti fyrir öll.
Gríptu til aðgerða og sendu ákall til herforingjaráðsins um að binda endi á herréttarhöld yfir almennum borgurum.
