Yfirlýsing
18. ágúst 2023Tuttugu og þrjú félagasamtök á Íslandi, þar á meðal Íslandsdeild Amnesty International, hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu vegna þeirrar alvarlegu stöðu sem komin er upp í málefnum fólks á flótta sem vísað hefur verið úr allri þjónustu opinberra aðila á Íslandi.
Félagasamtökin lýsa yfir þungum áhyggjum af afdrifum flóttafólksins, öryggi þeirra og mannlegri reisn og skora á stjórnvöld á Íslandi að tryggja þessa þætti auk þess sem þau kalla eftir samráðsfundi með stjórnvöldum.
Yfirlýsinguna má lesa hér fyrir neðan:
Neðangreind félagasamtök lýsa þungum áhyggjum af mjög alvarlegri stöðu sem komin er upp í málefnum fólks á flótta sem vísað hefur verið úr allri þjónustu opinberra aðila eftir neikvæða niðurstöðu umsóknar um vernd á báðum stjórnsýslustigum. Afdrif þess, öryggi og mannleg reisn eru í hættu.
Samtökin harma að ekki skuli hafa verið tekið tillit til ítrekaðra varnaðarorða varðandi afleiðingar nýrra lagaákvæða. Þá leikur mikill vafi á að framkvæmdin standist þær mannréttindaskuldbindingar sem íslensk stjórnvöld hafa undirgengist.
Margt sem ráðamenn hafa sagt í þessari umræðu er villandi, óljóst og byggir á skorti á upplýsingum um raunverulega stöðu fólksins.
Samtökin skora á yfirvöld að tryggja öryggi þessa hóps, mannréttindi og grunnaðstoð með virku samráði við hjálpar- og mannréttindasamtök.
Því boða neðangreind samtök stjórnvöld til samráðsfundar nk. mánudag 21. ágúst 2023 klukkan 17.00 í sal Hjálpræðishersins á Suðurlandsbraut 72. Sérstaklega hefur verið óskað eftir viðveru hlutaðeigandi ráðherra í ríkisstjórn Íslands.
Barnaheill
Biskup Íslands
FTA – félag talsmanna umsækjenda um alþjóðlega vernd
Geðhjálp
GETA hjálparsamtök
Hjálparstarf kirkjunnar
Hjálpræðisherinn á Íslandi
Íslandsdeild Amnesty International
Kvenréttindafélag Íslands
Mannréttindaskrifstofa Íslands
No Borders
Prestar innflytjenda, Þjóðkirkjunni
Rauði krossinn á Íslandi
Réttur barna á flótta
Samhjálp
Samtökin 78
Solaris
Stígamót
UNICEF á Íslandi
UN Women á Íslandi
W.O.M.E.N. – samtök kvenna af erlendum uppruna
Þroskahjálp
ÖBÍ – heildarsamtök fatlaðs fólks á Íslandi
Lestu einnig
Þú ætlar að styðja og .
Skrifaðu undir og Amnesty á Íslandi sendir viðeigandi aðilum bréf í þínu nafni. Engar aðrar persónuupplýsingar en nafn þitt munu fylgja bréfinu á viðkomandi stjórnvöld.
Með því að skrifa undir málin samþykkir þú skilmála Íslandsdeildar Amnesty International um undirskriftir og persónuverndarstefnu