Síle

Mann­rétt­inda­ástandið í Síle hefur ekki verið jafn slæmt frá valdatíð Augusto Pinochet sem var við völd til ársins 1990Fjölda­mót­mæli hófust í landinu um miðjan október 2019 þegar almenn­ingur brást við verðhækk­unum á almenn­ings­sam­göngum.

Gífur­legur ójöfn­uður ríkir í Síle og tóku mótmæl­endur einnig að krefjast rétt­látara samfé­lags þar sem ríkið tryggi réttinn til heil­brigð­is­þjón­ustu, mennt­unar, almanna­trygg­inga og aðgengis að vatni. Mótmæl­endum var mætt með gífur­legri hörku af örygg­is­sveitum ríkisins, undir stjórn Sebastián Piñera forseta landsins, sem beittu óhóf­legu valdi með það að mark­miði að refsa mótmæl­endum og valda þeim skaða til að sporna gegn frekari mótmælum. Yfir­völd rétt­lætu aðgerð­irnar með því að telja þær nauð­syn­legar til að vernda innviði samfé­lagsins og einka­eignir frá skemmdum.   

Í sumum tilvikum var gengið svo langt að beita pynd­ingum og kynferð­is­legu ofbeldi gegn mótmæl­endum. Embætti ríkis­sak­sóknara skráði rúmlega 2500 ákærur um mann­rétt­inda­brot. Þar af voru 1500 ákærur vegna pynd­inga og annarrar grimmi­legrar eða niður­lægj­andi meðferðar ásamt rúmlega 100 glæpum af kynferð­is­legum toga sem framdir voru af aðilum á vegum yfir­valda.  

Neyðarástand

Forseti Síle lýsti yfir neyð­ar­ástandi í landinu þann 18. október 2019 þar sem almenn­ingur var sviptur tilteknum rétt­indum og frelsi í tíu daga.

Mannrétt­inda­brot á vegum ríkisins jukust enn frekar og 31 einstak­lingur lét lífið í mótmælum, þar af a.m.k. fjórir af völdum örygg­is­sveita ríkisins. Þá særðust rúmlega 13 þúsund einstak­lingar á fyrstu tveimur mánuðum mótmæl­anna, þar af 1400 af völdum skotsára og 350 hlutu alvar­legan augnskaða af völdum hagla­skota og gúmmíkúlna 

Amnesty Internati­onal gat stað­fest með grein­ingu mynd­efnis að herinn skaut óvopnaða mótmæl­endur með sjálf­virkum rifflum og handbyssum.  

Þá beitti lögreglan einnig tára­gasi ótæpi­lega og ónauð­syn­lega og beindi því að spít­ölum, háskólum, heim­ilum og jafnvel grunn­skólum og sérskólum, með alvar­legum afleið­ingum fyrir börn og einstak­linga með fatlanir. 

Þessar árásir beindust einnig gegn almenn­ingi án nokk­urrar ástæðu, ásamt fjöl­miðla­fólki og vegfar­endum sem skrá­settu atburðina. Þá var ofbeldi ennfremur beitt gegn fólki sem þegar hafði verið hand­tekið og nokkrir lögreglu­menn og hermenn notuðu ökutæki til að keyra yfir mótmæl­endur eða gerðu tilraunir til þess.

Amnesty Internati­onal stað­festi eitt dauðs­fall af völdum barsmíða lögreglu og annað af völdum hermanns sem keyrði yfir mótmæl­anda.  

Romario Veloz, 26 ára, dó eftir að hermaður skaut hann í hálsinn í lítilli kröfu­göngu í borg­inni La Serena. Þegar hermenn birtust í almenn­ings­garði í borg­inni hófu þeir skot­hríð gegn mótmæl­endum sem þar voru saman­komnir.

Mynd­skeið af skot­hríð­inni sýna Romario ganga í hægðum sínum með hendur í vösum í almenn­ings­garð­inum. Við sömu mótmæli var Rolando Robledo, 41 árs, skotinn af hermanni og særðist á brjósti. Hann var í lífs­hættu í nokkra daga. Samkvæmt sjón­ar­vottum komu hermenn hvor­ugum mannanna til aðstoðar og herinn skaut að mótmæl­endum sem reyndu að hjálpa hinum særðu.  

Í Curicó, skaut hermaður José Miguel Uribe í bringuna með þeim afleið­ingum að hann dó. Hinn 25 ára gamli José Miguel hafði tekið þátt í að koma upp vegar­tálma ásamt fleiru ungu fólki til að stöðva umferð og setja þrýsting á stjórn­völd. Herinn kom á svæðið og hóf skot­hríð fyrir­vara­laust á þá sem voru viðstaddir. Samkvæmt vitnum kom enginn hermaður José Miguel til hjálpar. 

Pyndingar og önnur ill meðferð

Algengt er að yfir­völd í Chile beiti illri meðferð og jafnvel pynd­ingum til að skaða mótmæl­endur en hvort tveggja er glæpur samkvæmt alþjóða­lögum.

Amnesty Internati­onal hefur skráð tilvik þar sem pynd­ingum hefur verið beitt, þeirra á meðal kynferð­is­legu ofbeldi auk dauðs­falls í kjölfar illrar meðferðar lögregluEinnig sann­reyndu samtökin rúmlega 30 sönn­un­ar­gögn í mynd- og hljóð­formi sem sýna hvernig lögregla og her beittu grimmi­legri meðferð gegn almenn­ingi að ósekju. 

Alex Núñez39 ára, lét lífið í kjölfar hrotta­legra barsmíða lögreglu­manna. Alex átti leið hjá mótmælum í Maipú við höfuð­borgina Santiago, til að afhenda send­ingu þegar þrír lögreglu­menn stöðvuðu hann. Þeir fleygðu honum í jörðina og spörkuðu af miklu afli í höfuð hans og bringu. Daginn eftir lést Alex af áverkum sínum.

Í nóvember 2019 hafði ríkis­sak­sóknari undir höndum kærur vegna nauðg­unar og kynferð­isof­beldis af hálfu örygg­is­sveita í kjölfar mótmæl­anna. Þeirra á meðal mál Josué Maureira sem var nauðgað með kefli á lögreglu­stöð og honum veittir áverkar á rasskinnum með beittum hlutAð auki var hann barinn og niður­lægður með öðrum hætti vegna kynhneigðar hans.   

Í öðru máli þar sem pynd­ingum og illri meðferð var beitt, börðu lögreglu­menn frið­saman mótmæl­enda til óbóta með þeim afleið­ingum að þrjú rifbein brotnuðu, hann missti alfarið sjón á öðru auga, nefbrotnaði, fór úr axlarlið og lungað féll saman. Tólf lögreglu­menn réðust á hann þegar hann tók með frið­sömum hætti þátt í mótmælum, með pönnu og skeið, á Ñuñoa-torgi í Santiago.  

Þá sætti  Cristóbal Alexis Flen, 30 ára, barsmíðum allan þann tíma sem hann sat í varðhaldi í Maipo nálægt höfuð­borg­inni. Þegar áverkar Cristóbal Alexis voru skráðir var lögreglu­maður viðstaddur sem kom í veg fyrir að lækn­irinn skrá­setti af nákvæmni alla áverkana sem hann hlaut.

Amnesty Internati­onal fékk ítrekað upplýs­ingar um slík athæfi sem jafn­gildir tilraun til að breiða yfir glæp. Þegar samtökin ræddu við Cristóbal Alexis 19 dögum eftir ódæðið blæddi enn úr báðum augum og hann var marinn víðs vegar um líkamann.  

Alvarlegir áverkar af völdum haglabyssna og táragass

Alþjóðalög kveða á um að skotfæri, eins og gúmmí­kúlur og hagla­skot sem geta valdið dauðs­falli, séu aðeins notuð þegar líf eða líkamleg frið­helgi einstak­lings er í hættu og á þann hátt að sem minnstur skaði hljótist af.

Amnesty Internati­onal skráði hins vegar fjölda tilvika í Síle þar sem lögregla og her beittu slíkum skot­færum ítrekað og ótil­hlýði­lega á meðan á mótmælum stóð.

Amnesty Internati­onal skráði með grein­ingu mynd­efnis eitt dauðs­fall sem tengist beit­ingu á gúmmí­kúlum og 14 tilfelli þar sem brotið er gegn líkam­legri frið­helgi fólks. Í sjö þessara tilfella var um óafturkræfan augnskaða að ræða 

Kevin Gómez lét lífið eftir að hafa verið skotinn með hagla­byssu af hermanni í október 2019. Hann var einungis  24 ára gamall. Samkvæmt vitnum hóf hermaður fyrir­vara­laust skot­hríð af stuttu færi á Kevin sem var óvopn­aður.  

Í öðru tilviki slas­aðist 15 ára stúlka alvar­lega þar sem hún var stödd á frið­sömum mótmælum í nágrenni Cerrillos í Santiago þegar lögreglumaður skaut gúmmíkúlum úr lögreglubíl á ferð. Gúmmi­kúl­urnar ollu skaða á sjón vinstra auga stúlk­unnar ásamt áverkum á enni, öxl og hálsi.   

Í enn öðru tilviki varð 24 ára ungur maður fyrir 18 gúmmí­kúlu­skotum þegar hann tók upp á mynd­band aðgerðir lögregl­unnar í höfuð­borg­inni. Í mynd­bandinu má heyra unga manninn beita fortölum gegn lögreglu­manni sem hafði ráðist á vin hans þegar annar lögreglu­maður bregst við með því að skjóta á unga manninn af stuttu færi. Hann hlaut áverka á nefi, brjósti, báðum fótleggjum og alvarlegan skaða á auga.    

Lögregla beitti einnig tára­gasi í miklu návígiLögreglu­maður beindi tára­gasi að Nataliu Aravena, 24 ára, þegar hún tók þátt í frið­sömum mótmælum með þeim afleið­ingum að hún varð fyrir alvar­legum augnskaða á hægra auga.  

Gustavo Gatica var meðal mann­fjöldans á mótmæl­unum í nóvember 2019. Hann var skotinn í bæði augun og blind­aðist varan­lega. Árásin varð að forsíðu­frétt víða um heim. „Ég gaf augu mín svo fólk gæti opnað augu sín,“ segir Gustavo. Nánar um ákall Amnesty Internati­onal í máli hans má lesa hér.

Einnig hefur borið á beit­ingu reyk­sprengja gegn mótmæl­endum í Síle en þær eru hættu­legar heilsu fólks og er beiting þeirra gegn mótmæl­endum með öllu ótil­hlýðileg. Þann 14. nóvember 2019 beitti lögregla bæði öflugum vatns­byssum og reyk­sprengjum gegn björg­un­ar­sveitarfólki og heil­brigð­is­starfs­fólki þegar það reyndi að koma slös­uðum til bjargar.  

Tengt efni