Lögfræðingarnir Lilya Gemedzhi, Rustem Kyamilev og Nazim Sheikhmambetov voru svipt málflutningsleyfi 15. júlí síðastliðinn. Rússnesk yfirvöld afturkölluðu leyfi þeirra í refsingarskyni vegna mannréttindastarfa lögfræðinganna í þágu aðgerðasinna af þjóðarbroti Tatara á Krímskaganum. Ákærur á hendur aðgerðasinnunum eru af pólitískum rótum runnar.
Staða mannréttinda versnaði á Krímskaganum í kjölfar hernáms og ólögmætrar valdatöku Rússlands árið 2014. Innrás rússneska hersins í Úkraínu 24. febrúar 2022 veikti stöðu mannréttinda enn frekar. Birtingarmynd þess eru refsiaðgerðir gegn aðgerðsinnum, óháðu fjölmiðlafólki, fólki með skoðanir hliðhollar Úkraínu, meðlimum trúarhópa og fólki sem nýtir rétt sinn til tjáningarfrelsis og funda-og félagafrelsis. Aðgerðasinnar og aðrir áberandi aðilar af þjóðarbroti Tatara á Krímskaganum finna mest fyrir refsiaðgerðunum þar sem rússnesk yfirvöld álíta samfélag Tatara óhliðhollt hernámi Rússlands á Krímskaganum.
Leyfissviptingin gerir lögfræðingunum þremur ókleift að verja skjólstæðinga sína í sakamálum og réttarhöldum. Þau þurfa að bíða í heilt ár áður en þau mega taka aftur málflutningspróf. Verði leyfissviptingin ekki afturkölluð er stöðu lögfræðinga og mannréttinda á Krímskaganum ógnað enn frekar.
Skrifaðu undir ákall um að svipting málflutningsleyfis lögfræðinganna Lilyu Gemedzhi, Rustem Kyamilev og Nazim Sheikhmambetov verði afturkölluð.