Hörmungar og mannréttindaneyð dynur á Úkraínubúum. Nú þegar hafa fullorðnir og börn látið lífið og líf fleiri þúsunda eru í hættu. Krefstu þess að rússnesk yfirvöld stöðvi þessa árás og verndi almenna borgara núna strax!
Undir morgun 24. febrúar vöknuðu Úkraínubúar við þær fréttir að innrás rússneska hersins væri hafin. Um miðja nótt réðust rússneskir skriðdrekar inn í landið og herinn gerði atlögur úr mörgum áttum. Síðan þá hefur árásin stigmagnast.
Innan örfárra klukkustunda frá innrásinni staðfesti starfsfólk Amnesty International frásagnir og myndbönd af árásum á óbreytta borgara í landinu. Amnesty hefur staðfest árásir á spítala og skóla, notkun vopna eins og langdrægra skotflauga sem erfitt er að miða af nákvæmni og notkun ólöglegra vopna eins og klasasprengja. Óbreyttir borgarar hafa látið lífið og mögulega hafa stríðsglæpir nú þegar verið framdir af rússneskum herliðum.
Með því að beita vopnum gegn öðru ríki án lagalegrar réttmætrar ástæðu hefur Rússland augljóslega brotið gegn sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Rússland misnotar fasta sætið sitt í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna til að komast hjá því að vera dregið til ábyrgðar.
Rússneska ríkið verður að stöðva þessa árás gegn Úkraínu, vernda almenna borgara og virða alþjóðalög.
Hörmungar og mannréttindaneyð dynja nú á almenningi í Úkraínu, en í krafti fjöldans getum við náð árangri. Við verðum að vernda fólkið í Úkraínu.
Skrifaðu undir og krefstu þess að rússnesk yfirvöld hætti árásum umsvifalaust, verndi almenna borgara og virði lög!
Einnig má lesa nánar um málið hér.