Jemen

Yfirvofandi aftaka baráttukonu fyrir mannréttindum

Fatma al-Arwali er fyrrum yfir­maður jemenskrar skrif­stofu arab­íska banda­lagsins fyrir kven­leið­toga. Hún er aðeins 34 ára og hefur verið ötul baráttu­kona fyrir rétt­indum kvenna en á nú á hættu að vera tekin af lífi. Hún var ákærð fyrir að „aðstoða óvin­veitt ríki“ og fór mál hennar fyrir sérstakan rann­sókn­ar­dóm­stóli Húta í Sana, höfuð­borg Jemen. Hún var dæmd til dauða þann 5. desember 2023 í kjölfar ósann­gjarnra rétt­ar­halda.

Frá því hún var hand­tekin, í ágúst 2022, hefur öryggis- og leyni­þjón­usta Húta brotið endur­tekið á mann­rétt­indum Fatma al-Arwali. Hún hefur meðal annars sætt þvinguðu manns­hvarfi (í leyni­legu haldi yfir­valda) og setið í einangr­un­ar­vist í aðstæðum sem brjóta á banni við pynd­ingum og illri meðferð.

Frá árinu 2015 hefur Amnesty Internati­onal skráð yfir 60 mál einstak­linga sem hafa verið færðir fyrir sérstaka rann­sókn­ar­dóm­stólinn í Sana. Í þeim hópi eru fjöl­miðla­fólk, mann­rétt­inda­fröm­uðir, stjórn­mála­and­stæð­ingar og meðlimir trúar­legra minni­hluta­hópa sem hafa verið rang­lega ákærð fyrir uppspunnar sakir og sætt ósann­gjörnum rétt­ar­höldum.

Nær öll hafa verið ákærð fyrir njósnir, sem eru refsi­verðar með dauðarefs­ingu samkvæmt jemenskum lögum.

Skrifaðu undir og þrýstu á yfir­völd Húta að ógilda dauðadóm Fatma al-Arwali og tryggja að hún hljóti sann­gjarna máls­með­ferð í nýjum rétt­ar­höldum án dauðarefs­ingar eða að öðrum valkosti verði hún látin laus.

Þau þurfa þína hjálp!

Þín undirskrift getur bjargað mannslífi

Rússland

Fjölmiðlakona og tveggja barna móðir sætir illri meðferð í fangelsi

Maria Ponomarenko er fjölmiðlakona og tveggja barna móðir sem sætir illri meðferð í fangelsi. Hún deildi skilaboðum á samskiptamiðlinum Telegram um sprengjuárás rússneskra hersveita á leikhús í Mariupol í mars 2022. Skrifaðu undir og kallaðu eftir því að rússnesk stjórnvöld leysi Mariu Ponomarenko skilyrðislaust úr haldi án tafar.

Rússland

Fólk fangelsað fyrir að mótmæla stríðinu í Úkraínu

Rússnesku ritskoðunarlögin brjóta gegn mannréttindum. Rússland verður að afnema þessi ósanngjörnu lög án tafar og leysa úr haldi öll þau sem eru fangelsuð fyrir að tjá skoðanir sínar gegn stríðinu. Sýnum fólki í Rússlandi samstöðu sem hefur þor til að mótmæla friðsamlega stríðinu gegn Úkraínu.

Kólumbía

Verndum mannréttindafrömuði í Kólumbíu

Dag hvern hætta mannréttindafrömuðir lífi sínu í þágu mannréttinda í Kólumbíu. Vernda verður rétt þeirra til að tryggt sé að kólumbískt fólk geti lifað lífi sínu frjálst undan ofbeldi. Að berjast fyrir mannréttindum í Kólumbíu er afar hættulegt og mannréttindafrömuður er myrtur um það bil annan hvern dag. Skrifaðu undir og krefstu þess að kólumbísk stjórnvöld tryggi umfangsmiklar öryggisaðgerðir og verndi alla mannréttindafrömuði.

Alþjóðlegt

TikTok þarf að gæta öryggis barna og ungs fólks

Ungir notendur lýsa TikTok sem skaðlegum og ávanabindandi miðli þar sem þeir eiga á hættu að verða háð miðlinum út af tillögum sem sérstaklega eru sniðnar að þeim. Börn og ungt fólk sem horfa á myndefni sem tengist geðheilsu á TikTok eru líklegri til að fá tillögur um að horfa á sífellt fleiri myndbönd sem fjalla um, fegra og jafnvel hvetja til þunglyndislegra hugsana, sjálfskaða og sjálfsvígs. Skrifaðu undir og krefstu þess að að TikTok banni á heimsvísu sérsniðnar auglýsingar sem beint er að ungum notendum, og sjái til þess að það sé val að hafa sérsníðaðar tillögur að myndefni á efnisveitunni í stað þess að það sé sjálfgefið.

Lýðstjórnarlýðveldið Kongó

Stöðvið þvingaða brottflutninga í Kolwezi

Að svara eftirspurn heimsins eftir kopar og kóbalti er íbúum í Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó dýrkeypt. Þeir eru beittir þvinguðum brottflutningum og ofbeldi ásamt því að heimili þeirra eru eyðilögð. Skrifaðu undir ákall um að Tshisekedi forseti stöðvi þvingaða brottflutninga og mannréttindabrot í grennd við kopar- og kóbaltnámur.

Venesúela

Leysið úr haldi ranglega fangelsaða Venesúelabúa

Í nýrri skýrslu Amnesty International fordæma samtökin kúgunarstefnu ríkisstjórnar Nicolás Maduro í Venesúela og greina frá málum níu einstaklinga sem sæta varðhaldi að geðþótta. Skrifaðu undir og krefstu tafarlausrar lausnar þeirra án skilyrða.

Ísrael

Stöðva þarf tæknivædda aðskilnaðarstefnu gegn Palestínubúum

Palestínubúar berjast gegn andlitsgreiningartækni sem er notuð til að takmarka grundvallarréttindi þeirra. Tækni getur bætt aðgengi að námi, heilbrigðisþjónustu, upplýsingum og veitt fólki aukin tækifæri óháð uppruna þess. Ekki skal beita tækninni til að áreita og jaðarsetja Palestínubúa í þeim tilgangi að framfylgja aðskilnaðarstefnu Ísraelsríkis. Skrifaðu undir bréf til framleiðenda andlitsgreiningartæknibúnaðarins og krefstu tafarlausrar stöðvunar á framleiðslu á tæknibúnaði sem notar andlitsgreiningu og lífkenni.